Olíurannsóknir
ÍSOR hefur veitt stjórnvöldum sérfræðiaðstoð við undirbúning á sérleyfum til rannsókna og vinnslu kolvetnis. Vinnan hefur meðal annars falist í að:
- koma upp gagnasafni um landgrunn Íslands
- veita ráðgjöf við að túlka mæligögn með tilliti til líklegra auðlinda
- leggja mat á hvar líkur eru á að finna megi olíu- og gaslindir
Gagnasafn um landgrunn Íslands
Gagnasafnið inniheldur gögn sem tengjast landgrunni Íslands. Þetta eru yfirlitsgögn um hafsbotninn og upplýsingar um rannsóknarleiðangra, einkum hljóðendurvarpsmælingar og fjölgeislamælingar. Alls eru um 1100 kort, þversnið og önnur pappírsgögn skráð í gagnagrunninn, um helmingur á starfrænu formi. Gögnin eru frá því um miðja 20. öld. Nokkuð af gögnunum er hnitsett og vigrað. Gögnin eru einkum af Drekasvæðinu austur og norðaustur af landinu. Verkið var unnið í samstarfi við og fyrir Orkustofnun.
Stór hluti gagnanna var birtur í svokallaðri Landgrunnsvefsjá (aðgengileg fram til ársins 2019). Landgrunnsvefsjáin var upplýsingaveita um leyfissvæðin fyrir sérleyfi til rannsókna og vinnslu kolvetna.
Rannsóknargögn
- hljóðendurvarpsmælingar
- setlagarannsóknir
- fjölgeislamælingar
- þyngdarmælingar
- segulmælingar
- bylgjubrotsmælingar
- botnsýni
Túlkun gagna
1. Auðlindamat vegna kolvetnisleitar
ÍSOR hefur veitt íslenskum stjórnvöldum sérfræðiráðgjöf á mögulegum kolvetnisauðlindum og vænlegum leitarsvæðum á landgrunninu við undirbúning útboða og mat á umsóknum um rannsóknarleyfi.
Þrívítt jarðfræðilíkan af setlagastafla Drekasvæðisins
Á grundvelli jarðeðlisfræðilegra mælinga var gert þrívítt jarðfræðilíkan af setlagastafla Drekasvæðisins. Líkanið gefur mynd af útbreiðslu setlaga og þróun jarðmyndana í tímans rás. Einnig er hægt að álykta hvort aðstæður gætu hafa verið hagstæðar til myndunar olíu og samsöfnunar hennar í jarðlagagildrur.
ÍSOR notaði jarðvísindahugbúnaðinn PETREL sem er í senn gagnagrunnskerfi og tæki til vinnslu og túlkunar gagna.
2. Jan Mayen svæðið
Sérfræðiráðgjöf ÍSOR til stjórnvalda miðaði m.a. að því að rannsaka jarðfræði Jan Mayen hryggjarins. Það rannsóknarmat er haft til hliðsjónar þegar metnar eru líkur á olíu á Drekasvæðinu. Með jarðfræðilegum og jarðeðlisfræðilegum gögnum er unnt að rekja jarðsögu Jan Mayen svæðisins. Talið er að það hafi skyldleika við setlagatrog á Austur-Grænlandi, landgrunn Vestur-Noregs og landgrunn Færeyja og Hjaltlands. Á þeim svæðum hefur fundist olía í vinnanlegu magni.
Í hafsbotnssýnum frá Jan Mayen svæðinu hafa fundust vísbendingar um olíuleka frá júratímabilinu í nágrenni við eitt af stóru misgengjabeltunum. Sýnin voru tekin árið 2011. Það teljast jákvæðar vísbendingar um hugsanlegan kolvetnaforða á svæðinu. Meiri líkur eru taldar á gasi á djúpstæðum svæðum og þar sem eldvirkni hefur verið til staðar. Möguleikar á að finna olíu eru taldir vera á grynnri hlíðasvæðum.
Rannsóknum og kortlagningu verður haldið áfram hjá ÍSOR í samstarfi við Háskóla Íslands. Sjónum verður einkum beint að Jan Mayen meginlandsflekanum. Þær rannsóknir tengjast athugunum sem unnið hefur verið að á Grænlandi, í Noregi og á Bretlandi. Tilgangurinn er að auka þekkingu á eðli uppbyggingar og setmyndunar á svæðinu. Til stendur að nýta rannsóknirnar sem grunn fyrir frekari rannsóknir á útbreiðslu kolvetnissambanda.
Fyrirlestrar frá ráðstefnum um olíurannsóknir
- Seismic volcano-stratigraphic characteristics of the Jan Mayen Micro-Continent area and the possible distribution of volcanic intrusion complex and hydrothermal vents
Fyrirlestur Anett Blischke á 4th Faroe Islands Exploration Conference ráðstefnu í Þórshöfn, 1.-2. maí 2012 - Second Icelandic Licensing Round – Jan Mayen Offshore Exploration A Status Update
Fyrirlestur Anett Blischke á APEXX 2012 ráðstefnu í London, 6.-8. mars 2012 - History of geology and research of the Jan Mayen Micro-Continent and its associated exploration risks
Offshore geo-hazards to keep in mind during prospecting and exploration activities of the Jan Mayen Micro-Continent area
Fyrirlestur Anett Blischke á vetrarmóti norrænna jarðfræðinga í Reykjavík, 9.-12. janúar 2012 - Fyrirlestur Anett Blischke á AAPG 3P Arctic 2011 ráðstefnu í Halifax, 30. ágúst – 2. september 2011
- Fyrirlestur Anett Blischke á APPEX 2011 ráðstefnu í London, 1.-3. mars 2011
Sjá ennfremur á vef Orkustofnunar.