Skip to content

Þjónusta ÍSOR

ÍSOR veitir ráðgjafarþjónustu og annast beinar gunnrannsóknir á flestum sviðum jarðhitanýtingar og annarra auðlinda. ÍSOR hefur veitt íslenska orkuiðnaðinum og opinberum aðilum þjónustu og ráðgjöf á sviði jarðhitavísinda og jarðhitanýtingar um áraraðir. Jafnframt hefur erlendum fyrirtækjum og stjórnvöldum víða um heim verið veitt slík ráðgjöf og þjónusta. ÍSOR er meðal helstu fyrirtækja í heiminum á sviði rannsókna og þróunar í jarðhita.

ÍSOR veitir einnig verkfræðilega og hagfræðilega ráðgjöf um gufuveitukerfi og orkuver í samvinnu við verkfræðistofur. ÍSOR sinnir einnig jarðfræðikortagerð og jarðfræðirannsóknum vegna mannvirkjagerðar, skriðufalla, jarðskjálfta og eldvirkni. ÍSOR er ætíð opið fyrir þátttöku í nýjum verkefnum og/eða samvinnu við önnur fyrirtæki og stofnanir.

ÍSOR býr yfir áratugareynslu í að meta orkuforða jarðhitasvæða bæði við lág- og háhitakerfi á Íslandi sem og erlendis

Geothermal exploration
Hverir geothermal area in Iceland

ÍSOR stundar ýmsar rannsóknir í tengslum við jarðhita, bæði hvað varðar háhita og lághita. Í þessu felast rannsóknir á jarð-, jarðeðlis- og jarðefnafræði.

Borholuprófanir eru lykilatriði við borun rannsóknarholna, vinnsluholna, viðhald borholna og skráningu upplýsinga um hvert jarðhitasvæði.

ÍSOR á mælingabíla, auk margháttaðs annars skráningarbúnaðar og tæki til að annast borholumælingar. ÍSOR hefur veitt þessa þjónustu á nær öllum lághita- og háhitakerfum landsins, og víða erlendis.

ÍSOR Truck
Environmental Impact Assessments

Mat á umhverfisáhrifum er mikilvægur þáttur í hverju jarðhitaverkefni. Huga þarf að umhverfisþáttum allt frá fyrstu áætlunum til þess tíma að virkjun er reist.

ÍSOR leggur metnað í að miðla af reynslu sinni og þekkingu. Sérfræðingar ÍSOR hafa um áraraðir skipað meginhluta þess hóps sem kennir og þjálfar við Jarðhitaskólann (GRÓ GTP).

Efnagreiningar á vatni, gasi og jarðefnum eru meginsvið jarðefnaþjónustu ÍSOR.

Vatnsvernd og sjálfbær nýting vatnsauðlindarinnar er krafa nútímans. ÍSOR býr yfir sérþekkingu á þessu sviði.

Groundwater Research
Marine Geoscience

Hjá ÍSOR starfar hópur jarðfræðinga, jarðeðlisfræðinga og eðlisfræðinga sem hefur á undanförnum áratugum byggt upp sérfræðiþekkingu í öflun og túlkun gagna af hafsbotni.