Upplýsingaöryggi
ÍSOR hefur að leiðarljósi að nýta upplýsingatækni í starfsemi sinni, þ.m.t. varðveislu, úrvinnslu og miðlun gagna.
Það verður gert með því að:
- fylgjast með og tileinka sér nýjungar á sviði upplýsingatækni
- verkkaupar ÍSOR og samstarfsaðilar njóta góðrar þjónustu og ráðgjafar í upplýsingatæknimálum
- val á hugbúnaði tekur mið af því að hann uppfylli óskir og þarfir notenda, sé hagkvæmur og samþættanlegur öðrum upplýsingatæknilausnum
- gögn sem ÍSOR aflar eða býr til, í eigin þágu eða fyrir verkkaupa sína, eru skráð og varðveitt á öruggan og ábyrgan hátt og á stöðluðu, rafrænu og aðgengilegu formi eftir því sem það er unnt (með gögnum er hér átt við frumgögn, lýsigögn, reiknuð og afleidd gögn)
- skýrt er kveðið á um eignarhald og umráðarétt á þeim gögnum sem ÍSOR aflar, býr til og varðveitir
- gögn eru ekki afhent þriðja aðila til skoðunar, notkunar eða útgáfu nema tilskilin leyfi frá eigendum gagnanna séu fyrir hendi