Skip to content

Skriðtengin komin í holu!

Svokölluð skriðtengi (e. Flexible Couplings) hafa verið í þróun hjá ÍSOR síðastliðin tíu ár en þau eru ný lausn sem ætlað er leysa vandamál sem verður í borholum þegar þær hitna en þá geta fóðringar í holunum skemmst vegna varmaþenslu. Á dögunum náðist stór áfangi í verkefninu þegar skriðtengin voru sett niður til prófunar í nýja vinnsluholu NJ-37 sem Jarðboranir eru að bora fyrir Orka náttúrunnar við Nesjavallavirkjun.

ÍSOR, Orka náttúrunnar og Orkuveitan vinna saman að þróun og prófun skriðtengjanna en ÍSOR hlaut Nýsköpunarverðlaun IGC (Iceland Geothermal Conference) síðastliðið vor fyrir hönnun skriðtengjanna og fékk tilnefningu Evrópska Jarðhitaráðsins (European Geothermal Energy Council) til nýsköpunarverðlauna nú í ár. Skriðtengin eru íslensk einkaleyfisvarin hönnun ÍSOR og þau voru framleidd hjá Vélvík.

Skriðtengin eru hönnuð til að minnka spennumyndun vegna varmaþenslu sem myndast í innsteyptum stálfóðringum háhitaborholna. Spennur sem myndast við upphitun fara í flestum tilvikum langt yfir flotmörk stálsins sem þýðir að efnið formbjagast. Með notkun skriðtengja er komið í veg fyrir þessa spennumyndun með því að leyfa um 15-20 mm færslu í hverju röri og þannig er efninu haldið undir flotmörkum. Miklar vonir eru bundnar við að þessi nýju skriðtengi dragi verulega úr líkum á skemmdum í fóðringum, en það hefur verið talsvert vandamál til þessa.

Til þess að auka áreiðanleika mannvirkisins er hefðbundum fóðringatengjum skipt út fyrir skriðtengi. Fóðringar háhitaborholna samanstanda af um 12 m löngum stálrörum sem skrúfuð eru saman og mynda fóðringu sem er í hefðbundnum holum er 800-1200 m löng. Í borun er holunni haldið kaldri með hringrásardælingu borvökva, en þegar borun er hætt og holan er tilbúin þá hitnar hún og stálið byrjar að þenjast út vegna varmaþenslu. Hitastig háhitaborholna er breytilegt eftir svæðum og dýpi en er oftast á bilinu 250-300°C. Skriðtengin voru hönnuð og þróuð á ÍSOR í rannsóknaverkefnunum GeoWell og DEEPEGS sem studd voru af Horizon 2020 áætlun Evrópusambandsins. Þau voru virkniprófuð við raunaðstæður í tilraun á yfirborði í samstarfi við Orkuveituna, ON, Landsvirkjun og HS Orku í GEOTHERMICA verkefninu GeConnect (2019-2022).

Í nýju vinnsluholunni á Nesjavöllum var fyrsta framleiðsla skriðtengjanna eða um 67 stykki sett niður í vinnslufóðringu borholunnar. Þetta er merkur áfangi í vegferð skriðtengjanna en með því að sannreyna tæknina í borholu er komist nær því markmiði að nota tæknina fyrir yfirhitaðar djúpborunarholur þar sem vinnsluhiti gæti verið á bilinu 450-550°C. ÍSOR er þátttakandi í rannsóknarverkefninu COMPASS sem stutt er af Horizon Europe áætlun Evrópusambandsins og er leitt af Orkuveitunni og Orku náttúrunnar. Í verkefninu er leitast til að bæta hönnun djúpborunarholna sem undirbúningur fyrir borunar djúpborunarholunnar IDDP-3.

Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá sérfræðinga ÍSOR, Orku náttúrunnar og Orkuveitunnar fara nánar yfir hlutverk skriðtengja og hvaða vandamál þau geta leyst.