Jarðfræðingarnir Auður Agla Óladóttir og Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir voru fulltrúar ÍSOR á ráðstefnunni GeoTHERM expo & congress sem haldin var í Offenburg í Þýskalandi í lok febrúar. Um er að ræða einn helsta viðburð Evrópu fyrir fagfólk í jarðhita og sannkallaðan vettvang fyrir miðlun þekkingar og tengslamyndun innan greinarinnar.
Ráðstefnuvikan hófst á vinnustofu um lághita sem var skipulögð og haldin af GEOTHERMICA Initiative. Á vinnustofunni var rætt um leiðir til að takast á við þær áskoranir sem fylgja uppbyggingu og nýtingu lághita. Þótt Ísland sé þekkt fyrir háhitasvæði eru hér á landi einnig svæði með lægri hitastigli og minni lekt sem krefst annarrar nálgunar við rannsóknir og nýtingu. ÍSOR hefur verið í fararbroddi við könnun og þróun slíkra svæða og byggt upp dýrmæta þekkingu á því sviði.
Á vinnustofunni kynnti Auður Agla starfsemi ÍSOR, uppbyggingu hitaveitu og nýjustu framfarir í jarðhitarannsóknum á Vestfjörðum, þar sem Orkubú Vestfjarða vinna að því markmiði að skipta út rafknúinni hitaveitu fyrir hitaveitu með jarðhita. Verkefnið er mikilvægt skref í átt að aukinni sjálfbærni og hagkvæmari orkulausnum fyrir íbúa svæðisins.
Samtöl og umræður á ráðstefnunni endurspegluðu skýrt að jarðhiti – ekki síst lághiti– fær nú verðskuldaða athygli í Evrópu. Vaxandi áhugi á sjálfbærum orkugjöfum og orkuöryggi hefur aukið vægi jarðhita sem raunhæfan og áreiðanlegan valkost.
ÍSOR nýtti jafnframt tækifærið á ráðstefnunni til að funda með samstarfsaðilum sínum hjá Arctic Green Engineering Services og skipuleggja næstu verkefni. ÍSOR er reiðubúið að veita samþætta ráðgjafarþjónustu fyrir ört vaxandi jarðhitamarkað í Evrópu. Tækifærin eru fjölmörg og við hlökkum til að kanna þau áfram í samstarfi við nýja sem og núverandi samstarfsaðila.