Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR), í samstarfi við Háskóla Íslands og Jarðfræðafélag Íslands, mun halda ráðstefnu og vinnufund EMODnet-Geology verkefnisins, í fyrsta sinn á Íslandi. Í fyrstu viku júnímánaðar munu 55 jarðvísindamenn frá 26 evrópskum jarðfræðistofnunum og rannsóknaraðilum koma saman til að ræða núverandi og möguleg framtíðarverkefni hafsbotnsrannsókna og áframhaldandi uppbyggingu á gagnagrunni. Um er að ræða samstarfsverkefni sem hefur verið fjármagnað af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins síðan 2009 og felur í sér samstarf yfir 40 jarðvísindastofnana, háskóla og rannsóknarstofnana sem tryggir yfirgripsmikla sérfræðiþekkingu á hafsbotnsjarðfræði og nær yfir stór hafsvæði.
EMODnet er gagnasafnsþjónusta Evrópusambandsins, á ábyrgð skrifstofu fiskveiða og málefna hafsins (DG MARE) og er styrkt af „European Maritime Fisheries and Aquaculture Fund“. Verkefnið samanstendur af víðtæku neti yfir 120 stofnana sem vinna að því að safna, samræma og gera aðgengileg gögn um höf og hafsbotn ásamt því að útbúa þemakort og lýsigögn. EMODnet-Geology er eitt af sjö víðtækum sérfræðiverkefnum undir hatti EMODnet þjónustunnar og tekur ÍSOR þátt í því fyrir hönd Íslands. Önnur sérfræðiverkefni eru dýptargögn, sem HAFRÓ sinnir fyrir hönd Íslands, líffræði, efnafræði, athafnir manna, eðlisfræði og búsvæði hafsbotns.
Aðalmarkmið EMODnet-Geology er að safna saman, samræma og veita aðgang að jarðfræðilegum hafsbotnsgögnum úr evrópskum hafssvæðum og styðja þannig við sjálfbæra nýtingu og stjórnun auðlinda. Gögn frá ýmsum evrópskum aðilum eru samræmd og þau gerð aðgengileg um vefsjá EMODnet.
Gögnin nýtast m.a. við vísindalega rannsóknarvinnu, hagnýtingu og stefnumótun stjórnvalda, þ.m.t. um skipulagningu hafsvæða, mati á umhverfisáhrifum og nýtingu auðlinda. Verkefnið styður einnig við öflun gagna sem veita innsýn í hreyfingar og þróun strandlína ásamt náttúruvá og nýtast þannig við mótun árangursríkra verndaraðgerða. Helstu gagnasöfn sem unnið er að undir EMODnet-Geology verkefninu fjalla um kortlagningu á yfirborði hafsbotns (dýptarkort), setmyndun, jarðfræðilega gerð hafsbotns, breytingar á strandsvæðum, náttúruvá s.s. jarðskjálfta og neðansjávarskriður, auðlindir á hafsbotni s.s. málma og jarðhita, landslag og jarðsögu þar sem nýtt eru mæligögn úr borunum, sýnatöku og jarðeðlisfræðilegum mælingum.
Með því að veita aðgengi að samræmdum jarðvísindalegum hafsbotnsgögnum hefur EMODnet-Geology gegnt lykilhlutverki til aukinnar þekkingar sem stuðlar að sjálfbærri nýtingu auðlinda sjávar og hafsbotns í Evrópu. Þátttaka ÍSOR fyrir hönd Íslands í þessu verkefni hefur þegar leitt af sér mikilvægar afurðir, kort og gagnasöfn sem nýtast við ýmis verkefni stjórnvalda, stofnana, vísindasamfélags og annarra hagaðila. ÍSOR mun áfram taka þátt í EMODnet verkefninu og stuðla þannig að því að þetta mikilvæga verkefni bæti við þekkingu og styðji við hagsmuni Íslands á sviði hafsbotnsrannsókna og auðlindanýtingar til framtíðar.
Umsjónaraðilar ráðstefnunnar eru Dr. Anett Blischke jarðfræðingur, [email protected] og Ögmundur Erlendsson jarðfræðingur, [email protected].
2. júní 2025
