Skip to content

Alexandra K. Hafsteinsdóttir hlýtur Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands og Hugo Alejandro Arteaga Vivas sérstaka viðurkenningu fyrir verkefni unnin hjá ÍSOR

Alexandra K. Hafsteinsdóttir, nemandi í meistaranámi í jarðfræði við Háskóla Íslands og starfsmaður ÍSOR, hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefni sitt Kortlagning grunnvatns á Reykjanesskaga. Jafnframt hlaut Hugo Alejandro Arteaga Vivas, nemandi í meistaranámi í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, sérstaka viðurkenningu forseta Íslands fyrir verkefnið Vöktun á útbreiðslu gufupúða á háhitasvæðum.

Bæði verkefnin voru unnin hjá ÍSOR og byggja á rannsóknum sem hafa mikilvægt gildi fyrir vöktun og nýtingu náttúruauðlinda á Íslandi.

Verðlaunin afhenti Halla Tómasdóttir forseti Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum þriðjudaginn 20. Janúar 2026.

Halla Tómasdóttir forseti Íslands afhendir Alexöndru nýsköpunarverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Ljósmynd Arnaldur Halldórsson

Kortlagning grunnvatns á Reykjanesskaga – Alexandra K. Hafsteinsdóttir

Markmið rannsóknar Alexöndru var að kortleggja grunnvatnsstrauma á Reykjanesskaga með því að mæla leiðni (seltu) og greina anjónir í ferskvatni víðsvegar á skaganum, á sama tíma og þróað var verklag í kringum nýja rafknúna vatnsdælu. Tekin voru 24 sýni af grunnvatni víðsvegar á skaganum sumarið 2025 úr grunnum ferskvatns borholum. Í tíu borholum voru tekin sýni með nýju dælunni, sem fengið hefur viðurnefnið „Perlufestin“. Hún er einstaklega þægilegt og fyrirferðarlítið verkfæri til sýnatöku, ólíkt hefðbundnum vatnsdælum sem eru sverar, þungar, og knúnar áfram af stórum rafstöðvum.

Perlufestin hentar vel til sýnatöku úr grönnum ferskvatnsholum sem ekki er hægt að koma hefðbundinni borholudælu í, og auðvelt að flytja hana fótgangandi milli staða sem eru annars óaðgengilegir. Leiðni og anjónir voru mældar í vatnssýnunum, og niðurstöður greininganna settar fram á kortum sem sýna dreifingu þeirra á skaganum. Niðurstöðum ber vel saman við fyrri rannsóknir á vatnafari skagans. Skýr skil eru milli vatnasvæða, sem tengjast mismunandi berggrunni á hverju svæði fyrir sig.

Níunda eldgosið á Sundhnúkagígaröðinni hófst við framkvæmd rannsóknarinnar. Fjöldi sýna voru tekin í návígi við gosstöðvarnar á meðan á því stóð, og þau borin saman við eldri gögn af svæðinu. Niðurstöður efnagreininga sýna sem voru tekin benda ekki til þess að eldvirkin hafi markverð áhrif á efnasamsetningu grunnvatnsins, en lítil sem engin breyting er á efnainnihaldi grunnvatns á svæðinu frá upphafi mælinga

Leiðbeinendur Alexöndru voru Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir, Finnbogi Óskarsson, Auður Agla Óladóttir og Sigurður Garðar Kristinsson jarðfræðingar hjá ÍSOR.

Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Hugo við athöfnina á Bessastöðum. Ljósmynd Arnaldur Halldórsson

Vöktun á útbreiðslu gufupúða á háhitasvæðum – Hugo Alejandro Arteaga Vivas

Á háhitasvæðum í vinnslu eru heitt vatn og gufa unnin úr jörðu í gegnum borholur, og er gufan nýtt til þess að knýja túrbínur til raforkuframleiðslu. Með tímanum getur vinnsla leitt til þess að gufumagn eykst og s.k. gufupúði myndast vegna þrýstingslækkunar í jarðhitakerfinu. Til þessa hefur engin bein leið verið til að vakta þróun slíkrar gufupúðamyndunar önnur en stakar mælingar í borholum. Í nýlegri grein Pilar Sánchez-Pastor o.fl. (2023),er sýnt fram á aðferð sem notar s.k. jarðsuð til þess að fylgjast samfellt með breytingum í gufumagni í jarðhitakerfum. Jarðsuð er hægt að mæla með jarðskjálftamælum, og er forsenda aðferðarinnar sú að jarðskjálftabylgjur ferðast hægar í gegnum gufumettuð svæði en vatnsmettuð.

Markmið verkefnisins var að nýta og þróa áfram þessa aðferð út frá samfelldum mælingum á jarðsuði. Í verkefninu voru þróuð forrit til gagnaúrvinnslu og myndrænnar framsetningar, og var þeim beitt á þrjú ár af jarðskjálftagögnum frá nokkrum jarðskjálftastöðvum í nágrenni vinnslusvæðis jarðhita á Hellisheiði.

Vel tókst að endurskapa fyrri niðurstöður sem eru í samræmi við mælda þrýstingslækkun og landsig af völdum vinnslunnar á svæðinu. Verkefnið sýndi því fram á að þessa aðferð sé hægt að nýta til þess að fylgjast samfellt með breytingum í gufumagni á jarðhitasvæðum á hagkvæman hátt. Næstu skref eru að þróa og prófa aðferðina á öðrum jarðhitasvæðum í nýtingu.

Leiðbeinendur Hugo voru Þorbjörg Ágústsdóttir jarðeðlisfræðingur og sérfræðingur í jarðskjálftarannsóknum og Egill Árni Guðnason jarðeðlisfræðingur hjá ÍSOR.

Halla Tómasdóttir forseti Íslands, Alexandra og Hugo við hátíðlega athöfn á Bessastöðum

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru fyrst veitt árið 1996.

Í stjórn sjóðsins 2023-2026 sitja: Björgvin Stefán Pétursson, formaður, skipaður án tilnefningar, Sævar Helgi Bragason, tilnefndur af vísindanefnd Vísinda- og tækniráðs, Ásdís Jóhannesdóttir, tilnefnd af Samtökum iðnaðarins, Alexandra Briem, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Erla Guðbjörg Hallgrímsdóttir, tilnefnd af Landssamtökum íslenskra stúdenta.

Verðlaunin eru veitt þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem styrkt voru af Nýsköpunarsjóði námsmanna árið 2025 en sjóðurinn heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.

Tilkynning Nýsköpunarsjóðs námsmanna

Alexandra og Hugo fagna með leiðbeinendum sínum á Bessastöðum