Skip to content

Öflug þátttaka ÍSOR á World Geothermal Congress í Calgary 2026

ÍSOR tók virkan þátt í World Geothermal Congress 2026 sem haldin var í Calgary í Kanada dagana 8.–12. júní. Ráðstefnan er stærsti alþjóðlegi vettvangur fagfólks á sviði jarðhita og jarðvísinda og sækja hana helstu sérfræðingar og fulltrúar fyrirtækja og stofnana  víðs vegar að úr heiminum. Alls tóku 16 starfsmenn ÍSOR þátt í ráðstefnunni í ár með erindum  allt frá vöktun til  sjálfbærrar nýtingar á sviði jarðvísinda, ásamt því að taka þátt í pallborðsumræðum.

Gunnar Kaldal með erindi um skriðtengin

Mikill áhugi var á skriðtengjum ÍSOR (flexible Coupling), sem er íslensk einkaleyfisvarin nýsköpun sem þróuð hefur verið til notkunar í háhitaborholum. Lausnin vakti mikla athygli meðal ráðstefnugesta og þótti skýrt dæmi um hvernig íslensk þekking og reynsla getur leitt til nýrra tæknilausna fyrir jarðhitaiðnaðinn.

Jarðfræðingarnir okkar Steinþór, Sveinborg og Helga Margrét

Þátttaka ÍSOR á World Geothermal Congress 2026 var mikilvægt tækifæri til að miðla íslenskri þekkingu á alþjóðavettvangi, efla samstarf við sérfræðinga og samstarfsaðila um allan heim og fylgjast með nýjustu þróun á sviði jarðhita og jarðvísinda.

ÍSOR þakkar skipuleggjendum ráðstefnunnar og öllum þátttakendum fyrir fróðlegar umræður, verðmæt tengsl og ánægjulegt samstarf.

ÍSOR teymið mætt í höllina
Alexandra Kristín Hafsteinsdóttir með erindi sitt um Perlufestina og Reykjanesskagann
Alexandra Kristín
ÍSOR mætt í íslenska básinn
Egill Árni Guðnason með erindi um Eyjafjörðinn
Helga Margrét jarðfræðingur fjallar um lághita á Íslandi
Steinþór Níelsson með fyrirlestur um skriðtengin
Bjarni Richter með erindi um Jarðhitaskólann GRÓ GPT
Færri komust að en vildu er Auður Agla Óladóttir hélt erindi sitt
Árni Magnússon og Einar Hansen Tómasson
Sveinborg fræðir áhugasama við íslenska básinn