Skip to content

ÍSOR kortleggur sprungur og bergganga á Patreksfirði með flygildi

Starfsmenn ÍSOR voru við segulmælingar með flygildi á Patreksfirði og næsta nágrenni fyrir helgi. Markmið mælinganna var að fá skýrari mynd af legu bergganga og sprungna á svæðinu, til viðbótar við það litla sem kortlagt hefur verið á yfirborði á þessu svæði.

Þær upplýsingar sen fengust með hjálp flygildisins mun nýtast við frekari jarðhitaleit og staðsetningu næstu borholna á svæðinu.

Flygildi að störfum á Patreksfirði

Það hafa orðið hraðar framfarir í drónatækni á síðustu árum sem hefur skapað nýja möguleika í jarðvísindalegum rannsóknum.  ÍSOR hefur í um það bil áratug nýtt þessa tækni við segulmælingar, fyrst og fremst til kortlagningar innskotabergs (bergganga) á lághitasvæðum, en auk þess hefur ÍSOR nýtt flygildin í tengslum við jarðkönnun vegna umbrota í Grindavík og til greiningar á segulmögnun (og afsegulmögnun) bergs á háhitasvæðum.