ÍSOR tók virkan þátt í World Geothermal Congress 2026 sem haldin var í Calgary í Kanada dagana 8.–12. júní. Ráðstefnan er stærsti alþjóðlegi vettvangur fagfólks á sviði jarðhita og jarðvísinda og sækja hana helstu sérfræðingar og fulltrúar fyrirtækja og stofnana víðs vegar að úr heiminum. Alls tóku 16 starfsmenn ÍSOR þátt í ráðstefnunni í ár með erindum allt frá vöktun til sjálfbærrar nýtingar á sviði jarðvísinda, ásamt því að taka þátt í pallborðsumræðum.
Mikill áhugi var á skriðtengjum ÍSOR (flexible Coupling), sem er íslensk einkaleyfisvarin nýsköpun sem þróuð hefur verið til notkunar í háhitaborholum. Lausnin vakti mikla athygli meðal ráðstefnugesta og þótti skýrt dæmi um hvernig íslensk þekking og reynsla getur leitt til nýrra tæknilausna fyrir jarðhitaiðnaðinn.
Þátttaka ÍSOR á World Geothermal Congress 2026 var mikilvægt tækifæri til að miðla íslenskri þekkingu á alþjóðavettvangi, efla samstarf við sérfræðinga og samstarfsaðila um allan heim og fylgjast með nýjustu þróun á sviði jarðhita og jarðvísinda.
ÍSOR þakkar skipuleggjendum ráðstefnunnar og öllum þátttakendum fyrir fróðlegar umræður, verðmæt tengsl og ánægjulegt samstarf.
