Hoppa í aðalefni
ÍSOR, Iceland GeoSurveyÍSOR, Iceland GeoSurvey

Fréttir

Valérie Levkov varaforseti Alþjóðabankans á sviði innviða heimsótti ÍSOR og Jarðhitaskólann

ÍSOR · 2. nóvember 2026 · 3 mín. lestur

Valérie Levkov varaforseti Alþjóðabankans á sviði innviða heimsótti ÍSOR og Jarðhitaskólann

Í dag tóku ÍSOR og Jarðhitaskólinn GRÓ á móti Valérie Levkov, varaforseta Alþjóðabankans (World Bank Group) á sviði innviða. Heimsókn hennar til Íslands er skipulögð af utanríkisráðuneytinu og mun hún á meðan á dvölinni stendur hitta nokkra af helstu aðilum á íslenskum jarðhitamarkaði.

Á fundinum kynntu starfsfólk ÍSOR og Jarðhitaskólans sögu og þróun jarðhitanýtingar á Íslandi og þann mikilvæga þátt sem jarðhitinn hefur átt í að bæta lífsgæði og stuðla að samfélagslegri og efnahagslegri þróun þjóðarinnar.

Einnig var fjallað um framlag Íslendinga til þróunar jarðhitanýtingar á heimsvísu, ekki síst í gegnum starfsemi Jarðhitaskóla GRÓ GTP. Frá stofnun skólans hafa nærri níu hundruð aðilar frá fjölmörgum löndum sótt sex mánaða sérhæft nám við skólann og þúsundir þátttakenda hafa sótt styttri námskeið á hans vegum. Þannig hefur íslensk þekking og reynsla af jarðhita nýst víða um heim og stuðlað að uppbyggingu sérfræðiþekkingar og sjálfbærri nýtingu jarðhita.

Gott og náið samstarf Íslands og Alþjóðabankans getur gegnt mikilvægu hlutverki í áframhaldandi þróun og útbreiðslu jarðhitanýtingar á heimsvísu. Það var því sérlega ánægjulegt fyrir ÍSOR og Jarðhitaskólann að taka á móti Valérie Levkov og eiga við hana gagnlegt samtal um tækifæri og framtíð jarðhita.

Deila þessari grein
ÍSOR
Höfundur · ÍSOR

Skráðu þig á fréttabréfið og fáðu nýjustu greinar í pósthólfið.