Hoppa í aðalefni
ÍSOR, Iceland GeoSurveyÍSOR, Iceland GeoSurvey

Um okkur

Um ÍSOR

Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) eru leiðandi á sviði rannsókna og þróunar í jarðhita. ÍSOR er sjálfstæð ríkisstofnun sem heyrir undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.

Hlutverk

Þekking í þágu sjálfbærrar nýtingar

ÍSOR er leiðandi íslenskt alþjóðlegt fyrirtæki sem veitir jarðvarmaiðnaðinum sérfræðiráðgjöf og tæknilega þekkingu á sviði jarðvísinda, bæði fyrir háhita- og lághitasvæði.

Mannauður okkar er mikilvægasta auðlindin – teymi sérfræðinga á heimsmælikvarða með áratuga reynslu, yfirgripsmikla gagnasöfnun og djúpa þekkingu á jarðvarma.

Árangursrík og sjálfbær þróun og nýting jarðvarma krefst nákvæmrar þekkingar á langtímaframleiðslugetu auðlindanna og vandaðrar stýringar á nýtingu þeirra á öllum stigum. Þar með talið er náið eftirlit með kerfinu meðan á orkuframleiðslu stendur, auk þess að draga úr og bregðast við mögulegum umhverfisáhrifum.

Grundvöllur að víðtækri þjónustu ÍSOR er sérþekking okkar á jarðvísindum og faglegur undirbúningur. Því er ÍSOR kjörinn samstarfsaðili þinn.

Reynsla okkar af þjónustu við jarðvarmaiðnaðinn, bæði hérlendis og erlendis, nær yfir nærri heila öld. Hún spannar meðal annars raforkuframleiðslu, hitaveitukerfi og aðra nýtingu jarðvarma.

Hlutverk ÍSOR er samkvæmt lögum að vinna að verkefnum og rannsóknum á sviði náttúrufars, orkumála og annarra auðlindamála og veita ráðgjöf á flestum sviðum jarðhitanýtingar.

ÍSOR starfar á viðskiptalegum grundvelli á samkeppnismarkaði, bæði á Íslandi og á heimsvísu, og þjónar orkugeiranum, opinberum aðilum og alþjóðlegum viðskiptavinum á sviði jarðhita, grunnvatns, hafsbotnsrannsókna og umhverfismála.

Sérfræðingar ÍSOR við jarðvísindarannsóknir á vettvangi á Íslandi
Sérfræðingar ÍSOR starfa á vettvangi um allt land og erlendis.

Gildin okkar

Þannig vinnum við

Saga

Áfangar í sögunni

  1. 1945

    Rannsóknarsaga ÍSOR hefst þegar dr. Gunnar Böðvarsson verkfræðingur kemur heim frá námi og hefur jarðhitarannsóknir.

  2. 1956

    Jarðhitadeild sett á fót og Gunnar Böðvarsson skipaður deildarstjóri.

  3. 1967

    Orkustofnun stofnuð með nýjum orkulögum.

  4. 1997

    Rannsóknadeildir sameinaðar og Ólafur G. Flóvenz skipaður forstöðumaður.

  5. 2003

    Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) stofnaðar 1. júlí sem sjálfstæð ríkisstofnun út frá Orkustofnun.

  6. 2023

    ÍSOR fagnar 20 ára afmæli sem leiðandi stofnun í jarðhita og jarðvísindum.

Kynntu þér fólkið á bak við rannsóknirnar eða hafðu samband.