Fréttir
Íslensk þekking getur hraðað uppbyggingu jarðhita í Evrópu
ÍSOR · 15. september 2026 · 2 mín. lestur

„Það verðmætasta sem Ísland getur miðlað til Evrópu er ekki jarðfræðin heldur þekkingin og reynslan“ sagði Árni Magnússon, forstjóri ÍSOR, í viðtali við CE Energy News í tengslum við fjórðu Búdapest Geothermal Energy Summit ráðstefnuna sem haldin var í Búdapest þann 14 september. CE Energy News fjallaði jafnframt um erindi Árna á ráðstefnunni, þar sem hann ræddi hvernig reynsla Íslands getur nýst Evrópu við aukna nýtingu jarðhita.
Budapest Geothermal Energy Summit var nú haldin í fjórða sinn og þar komu saman fulltrúar stjórnvalda, orkugeirans og sérfræðingar til að ræða tækifæri og áskoranir við frekari nýtingu jarðhita í Evrópu.
Í erindi sínu lagði Árni áherslu á að jarðhiti geti stuðlað að auknu orkuöryggi og stöðugleika til framtíðar. Reynslan frá Íslandi sýni hvernig markviss stefna, rannsóknir og uppbygging þekkingar geti gjörbreytt orkunotkun. Fyrir tæpri öld reiddi Ísland sig að verulegu leyti á kol og olíu en í dag er jarðhiti nýttur til húshitunar hjá yfir 90% heimila landsins og stendur undir tæplega 30% raforkuframleiðslunnar.

Mikil ónýtt tækifæri í Evrópu
Í viðtalinu við CE Energy News bendir Árni á að jarðhiti sé ekki bundinn við eldvirk svæði. Víða í Evrópu séu jarðhitaauðlindir sem geti nýst til hitaveitu, landbúnaðar, fiskeldis og iðnaðar, auk raforkuframleiðslu þar sem aðstæður leyfa.
Árangur Íslands byggist ekki eingöngu á hagstæðum jarðfræðilegum aðstæðum heldur á áratuga uppbyggingu þekkingar og reynslu, meðal annars við jarðhitaleit, boranir, mat á jarðhitageymum og sjálfbærri auðlindastýringu. Sú reynsla geti nýst við uppbyggingu jarðhitaverkefna í Evrópu.
Árni lagði jafnframt áherslu á mikilvægi þess að draga úr áhættu á fyrstu stigum verkefna með vönduðum rannsóknum, skýru regluverki og viðeigandi áhættudreifingu. Markmiðið sé ekki að útrýma áhættu heldur að stýra henni þannig að auðveldara verði að fjármagna og byggja upp ný verkefni.
ÍSOR vill auka samstarf í Evrópu
ÍSOR hefur áratuga reynslu af jarðhitarannsóknum og alþjóðlegum verkefnum og sér mikil tækifæri til aukins samstarfs í Mið- og Austur-Evrópu. Þar getur íslensk reynsla nýst samhliða staðbundinni sérþekkingu við rannsóknir, mat á jarðhitaauðlindum og þróun þeirra í hagnýtar orkulausnir.
Að mati Árna eru tækifærin veruleg, ekki síst í beinni nýtingu jarðhita til hitaveitu, landbúnaðar og iðnaðar. Með aukinni nýtingu staðbundinna jarðhitaauðlinda geti Evrópuríki jafnframt styrkt orkuöryggi sitt og stuðlað að auknum stöðugleika í orkuverði og framboði.
Viðtal CE Energy News við Árna Magnússon, forstjóra ÍSOR
Umfjöllun CE Energy News um erindi Árna á Budapest 4th Geothermal Energy Summit ráðstefnunni.


