Hoppa í aðalefni
ÍSOR, Iceland GeoSurveyÍSOR, Iceland GeoSurvey

Fréttir

Frá Kröflu til Þeistareykja. Vel heppnuð mælingaferð á jarðhitasvæði Norðausturlands

ÍSOR · 25. ágúst 2026 · 2 mín. lestur

Frá Kröflu til Þeistareykja. Vel heppnuð mælingaferð á jarðhitasvæði Norðausturlands

Í síðustu viku hélt hópur starfsmanna ÍSOR norður í land í árlega ferð til að kortleggja og vakta yfirborðsvirkni á jarðhitasvæðum sem Landsvirkjun nýtir á Norðausturlandi, í Námafjalli, Kröflu og á Þeistareykjum.

Að þessu sinni voru það Finnbogi, Teitur, Alexandra og Gauti sem sinntu mælingunum fyrir hönd ÍSOR. Veðrið lék við hópinn meðan á vettvangsvinnunni stóð og ríkti mikil ánægja með ferðina og hversu vel tókst til við mælingar og sýnatöku.

Vöktun af þessu tagi er fyrst og fremst ætlað að kanna hvort nýting jarðhitans hafi áhrif á yfirborðsvirkni jarðhitasvæðanna. ÍSOR hefur sinnt þessari vöktun með sambærilegu sniði frá árinu 2012 og hafa því safnast upp verðmætar langtímaupplýsingar um þróun svæðanna.

Í ár var aðaláherslan lögð á Þeistareyki. Þar var losun koldíoxíðs um yfirborð mæld, gufuflæði úr gufuhverum kannað og gufusýnum safnað úr völdum gufuhverum.

Alls var gasflæði mælt í tæplega þúsund punktum á Þeistareykjum. Gufuflæði var jafnframt mælt í öllum aðgengilegum gufuhverum og metið á þeim svæðum sem ekki var hægt að komast að. Þá var efnasýnum safnað úr sjö gufuhverum.

Gufusýnum hefur verið safnað árlega frá árinu 2012 og gasflæðimælingar hafa verið gerðar á eins til þriggja ára fresti. Í ár bættist hins vegar við nýr þáttur í vöktunina, því þetta er í fyrsta sinn sem gufuflæði úr gufuhverum er mælt með þessum hætti. Niðurstöður mælinganna nýtast til að greina hugsanlegar breytingar á yfirborðsvirkni sem rekja mætti til nýtingar jarðhitans.

Hinn meginþátturinn í vöktun ÍSOR á umhverfisáhrifum jarðhitanýtingar hjá Landsvirkjun er eftirlit með efnasamsetningu grunnvatns á áhrifasvæðum virkjananna. ÍSOR hefur sinnt þeirri vöktun frá því um aldamót.

Næsti liður í vöktuninni er því skammt undan, en sýnataka vegna eftirlits með grunnvatni fer fram í september.

Ferðin í ár gekk í alla staði vel. Góðar aðstæður og einstaklega hagstætt veður auðvelduðu umfangsmikla vettvangsvinnu og hópurinn sneri heim ánægður með vel heppnaða ferð og góðan afrakstur mælinganna.

Deila þessari grein
ÍSOR
Höfundur · ÍSOR

Tengdar greinar

Íslensk þekking getur hraðað uppbyggingu jarðhita í Evrópu

Fréttir

Íslensk þekking getur hraðað uppbyggingu jarðhita í Evrópu

„Það verðmætasta sem Ísland getur miðlað til Evrópu er ekki jarðfræðin heldur þekkingin og reynslan“ sagði Árni Magnússon, forstjóri ÍSOR, í viðtali við CE Energy News í tengslum við fjórðu Búdapest Geothermal Energy Summit ráðstefnuna sem haldin var í Búdapest þann 14 september. CE Energy News fjallaði jafnframt um erindi Árna á ráðstefnunni, þar sem hann ræddi hvernig reynsla Íslands getur nýst Evrópu við aukna nýtingu jarðhita.

15. september 2026 · ÍSOR · 2 mín. lestur

Öflug ný jarðhitahola í landi Kílhrauns í Áshildarmýri á Skeiðum

Fréttir

Öflug ný jarðhitahola í landi Kílhrauns í Áshildarmýri á Skeiðum

Borun nýrrar vinnsluholu fyrir Hitaveitu Kílhrauns í Áshildarmýri á Skeiðum lauk um helgina með mjög góðum árangri. Holan gefur um 80°C heitt vatn og fyrstu niðurstöður benda til mikillar afkastagetu. Jarðfræðingar ÍSOR staðsettu holuna, en stofnunin hefur komið að jarðhitaleit á svæðinu frá upphafi.

11. ágúst 2026 · ÍSOR · 2 mín. lestur

ÍSOR hefur hafsbotnsrannsóknir vegna Eyjaganga. Sparker-endurkastmælir notaður í fyrsta sinn á Íslandi

Fréttir

ÍSOR hefur hafsbotnsrannsóknir vegna Eyjaganga. Sparker-endurkastmælir notaður í fyrsta sinn á Íslandi

ÍSOR hefja í dag nýjan kafla í starfsemi sinni þegar sérfræðingar okkar halda til hafs um borð í sjómælingaskipinu Baldri ásamt erlendum sérfræðingum. Verkefnið er framhald rannsókna á hafsbotni sem ef vel gengur, geta varpað ljósi á gerð og gæði hafsbotns milli lands og Vestmannaeyja.

30. júní 2026 · ÍSOR · 1 mín. lestur

Skráðu þig á fréttabréfið og fáðu nýjustu greinar í pósthólfið.