Verkefni
Verkefni
Dæmi um rannsóknarverkefni okkar, í vinnslu og lokið.
Verkefni
Dæmi um rannsóknarverkefni okkar, í vinnslu og lokið.

Veðurstofa Íslands
EPOS Ísland miðar að uppbyggingu rafrænna innviða á Íslandi í formi öflugra gagnaþjónusta, sem settar eru upp og þjónustaðar hjá Veðurstofu Íslands. Þjónusturnar eru beintengdar miðlægri gagnaþjónustu EPOS ERIC, sem veitir aðgengi að mikilvægum fjölþátta jarðvísindagögnum frá Íslandi og leyfir úrvinnslu og samtúlkun með alþjóðlegum jarðvísindagögnum sem þar eru.
Lesa meira
EuroGeoSurveys
Við stefnum að því að leggja okkar af mörkum til Græna sáttmála Evrópu, Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og markmiða Horizon Europe með þróun jarðfræðiþjónustu fyrir Evrópu, sem beinist að plánetunni sjálfri: jörðinni undir fótum okkar.
Lesa meira
EuroGeoSurveys
Á grundvelli reynslu fyrri áfanga mun samstarfshópurinn halda áfram að taka saman dreifð hafsbotnsgögn og gera þau aðgengileg um EMODnet-gáttina að lokinni bestun og prófunum í útboði EASME/2020/OP/0006 – [Lot 2 – Geology] Consortium GTK – Technical offer EGDI, evrópsku jarðfræðigagnaveituna (European Geological Data Infrastructure), og í kerfum verkþáttastjóra (WP). Gáttin veitir einnig aðgang að gögnum og lýsigögnum hverrar þátttökustofnunar, sem gerir notendum kleift að meta gæði gagnanna og býður þeim að búa til eigin kort eða líkön. Gögnin verða tekin saman í mælikvarða 1:100.000 eða nákvæmari samkvæmt þeim stöðlum sem þróaðir voru í fyrri EMODnet Geology verkefnum. Jafnframt heldur hópurinn áfram að bæta gögn í mælikvörðum 1:250.000 og 1:1.000.000 sem urðu til í eldri EMODnet-áföngum, enda hafa þau sérstakt gildi fyrir notkun og framsetningu á svæðis- til samevrópskum skala. Smærri mælikvarðarnir eru fróðlegir en þó brotakenndari.
Lesa meira
Czech Academy of Sciences
NASPMON er fjögurra ára samstarfsverkefni Íslendinga og Tékka; nánar tiltekið ÍSOR og tveggja deilda innan Tékknesku vísindaakademíunnar (CAS) auk Raunvísindadeildar Charles háskólans í Prag. NASPMON verkefnið byggir á áratuga óformlegu samstarfi ÍSOR og CAS, en Akademían hefur rekið 15 skjálftamæla á Reykjanesskaga í samvinnu við ÍSOR frá árinu 2013.
Lesa meira