Verkefni
Verkefni
Dæmi um rannsóknarverkefni okkar, í vinnslu og lokið.
Verkefni
Dæmi um rannsóknarverkefni okkar, í vinnslu og lokið.

ON Power
Verkefnið fjallar um undirbúning að djúpborun og miðar að lausnum til að fóðringar þoli þá áraun sem verður þegar háhitaholur hitna upp. Það á meðal annars að gera með því að skoða steypingu með “foam-steypu” sem er létt og sveigjanleg steypa sem minnkar álag á fóðringuna. Þróuð verður aðferð við að hleypa af þrýstingi sem myndast milli fóðringa (ÍSOR), tæringarvörn með klöddun verður sérstaklega skoðuð og farið í tæringarprófanir á yfirborði og ofan í holu með mælivír (ÍSOR). Samþætt fóðringa-kerfi sem á að þola yfirkrítískar aðstæður (m.a. með notkun skriðtengja) verður prófað í tilraunum hjá SINTEF í Noregi sem annast líka hermun á borholum.
Lesa meira
Orka náttúrunnar
H2S losun frá jarðvarmavirkjunum skapar loftmengun, svipað og CO2.og umbreyting /steinrenning/förgun gass í jarðefni er í dag ákjósanlegasta leiðin til að meðhöndla jarðhitalosun. Markmið verkefnisins er að prófa og þróa ýmsar jarðeðlisfræðilegar aðferðir sem hægt er að beita við vöktun á jarðefnaupptöku jarðgass og fylgjast með því sem er í raun að gerast undir yfirborðinu.
Lesa meira
Jarðvísindastofnun HÍ
Búnaður samanstendur af segulmæli og dróna. Segulmælirinn er af gerðinni MagArrow frá Geometrics og er sérstaklega gerður fyrir mælingar með dróna, en er jafnframt hægt að nota til mælinga úr þyrlu eða flugvél. Dróninn er af gerðinni DJI Matrice 600 Pro. Búnaðinum er ætlað að bæta við þá getu sem þegar er fyrir hendi í jarðeðlisfræðilegri könnun á Íslandi en búnaðurinn til þeirra mælingar er einkum hjá ÍSOR og HÍ. Samvinna er um tækjauppbyggingu og þessi búnaður er hluti hennar.
Lesa meira
Carbfix
Markmið verkefnisins er að leiða saman háskóla og rannsóknastofnanir á Íslandi og í Evrópu til að þróa áfram Carbfix-bindingu á CO2 og gera kleift að nýta sjó til niðurdælingar. Tilraunir á rannsóknarstofu, sem gerðar eru að hluta til af Háskóla Íslands, hafa þegar sýnt jákvæðar niðurstöður við stýrðar aðstæður en hár styrkur uppleystra frumefna í sjó getur torveldað myndun karbónata og myndað óæskilegar útfellingar.
Lesa meira
TNO
Fyrir vistvænar borgir (mission horizon Europe) er búist við að jarðhiti verði nýttur víða í þéttbýli til upphitunar í stað jarðefnaeldsneytis. Jarðhitanýting í þéttbýli getur verið flókin – jafnvel þó að jarðhitakerfin séu tiltölulega vel þekkt. Meginmarkmiðið er að sýna fram á möguleika á aukningu um 30-100% af helstu jarðhitanýtingu til upphitunar í þéttbýli í norðurhluta ESB. RESULT nær þessu með því að beita 1) hagræðingaraðferðum og bora og læra aðferðir, 2) líkanareikningum og óvissumat, 3) nota bestu tæknina, 4) bestun á aðferðum við mismunandi aðstæður í Evrópu. Nýjungarnar verða 5) notaðar við hönnun og borun tvinnholna (doublet) í Hollandi.
Lesa meira
Orkuveita Reykjavíkur
Meginmarkmið verkefnisins er að nota sk. Play Fairway Analyses (PFA) aðferðafræði til þess að meta líkur á árangri jarðhitaleitar á eldfjallasvæðum og í leiðinni að bæta hann. Í stuttu máli felst aðferðin í að nota margvísleg jarðvísindaleg gögn til þess að ákvarða líkur á háum hita og góðri lekt í jörðinni. Aðferðin er þekkt í olíu- og gasiðnaði og hefur skilað góðum árangri við leit að jarðrænum auðlindum. Nú er komið að því að þróa þessa aðferð við jarðhitaleit í eldfjallaumhverfi.
Lesa meira
GFZ Potsdam
Í þessu verkefni er sjónum beint að sjálfum jarðhitavökvanum og eðli hans. Reynt verður að finna lausnir á hinum ýmsu efnafræðivandamálum sem upp kunna að koma á vinnslustigum jarðhitans. Markmið verkefnisins er að auka skilvirkni í allri jarðhitastarfsemi og gera jarðhitavinnslu sem hagkvæmasta þannig að hægt verði að draga úr notkun á jarðefnaeldsneyti. Þáttur ÍSOR snýr einkum að því að athuga hvernig hægt er að taka efnasýni úr jarðhitavökva á miklu dýpi (3-5 km) þar sem hitastig og þrýstingur er mun meiri en áður hefur verið unnið með.
Lesa meira
Orkuveita Reykjavíkur
Markmið GECO-verkefnisins er að þróa hagkvæmar aðferðir til að minnka kolefnislosun, koltvíoxíðs (CO2) og brennisteinsvetnis (H2S), frá jarðhitavirkjunum í Evrópu og í heiminum öllum. Verkefnið byggir að stórum hluta á CarbFix-niðurdælingaraðferðinni sem þróuð hefur verið við Hellisheiðarvirkjun undanfarinn áratug. Þar er koltvíoxíð og brennisteinsvetni leyst upp í vatni og dælt niður í berggrunninn þar sem það binst í steindunum kalsíti og pýríti. Aðferðin verður nú þróuð enn frekar og niðurdæling reynd á Ítalíu, Tyrklandi og Þýskalandi. Auk þess verður unnið að því hagnýta jarðhitagastegundir en lykillinn að því er að skilja að brennisteinsvetni og koltvíoxíð. Innan GECO verður einnig unnið að aðferðum til umhverfissvöktunar á jarðhitasvæðum og að því að auka skilning á hegðun og afdrifum jarðhitagassins eftir niðurdælingu.
Lesa meira