
Svokölluð skriðtengi (e. Flexible Couplings) hafa verið í þróun hjá ÍSOR síðastliðin tíu ár en þau eru ný lausn sem ætlað er leysa vandamál sem verður í borholum þegar þær hitna en þá geta fóðringar í holunum skemmst vegna varmaþenslu.
Skriðtengin eru hönnuð til að minnka spennumyndun vegna varmaþenslu sem myndast í innsteyptum stálfóðringum háhitaborholna. Spennur sem myndast við upphitun fara í flestum tilvikum langt yfir flotmörk stálsins sem þýðir að efnið formbjagast. Með notkun skriðtengja er komið í veg fyrir þessa spennumyndun með því að leyfa um 15-20 mm færslu í hverju röri og þannig er efninu haldið undir flotmörkum. Miklar vonir eru bundnar við að þessi nýju skriðtengi dragi verulega úr líkum á skemmdum í fóðringum, en það hefur verið talsvert vandamál til þessa.
Til þess að auka áreiðanleika mannvirkisins er hefðbundum fóðringatengjum skipt út fyrir skriðtengi. Fóðringar háhitaborholna samanstanda af um 12 m löngum stálrörum sem skrúfuð eru saman og mynda fóðringu sem er í hefðbundnum holum er 800-1200 m löng. Í borun er holunni haldið kaldri með hringrásardælingu borvökva, en þegar borun er hætt og holan er tilbúin þá hitnar hún og stálið byrjar að þenjast út vegna varmaþenslu. Hitastig háhitaborholna er breytilegt eftir svæðum og dýpi en er oftast á bilinu 250-300°C.

Skriðtengin voru hönnuð og þróuð á ÍSOR í rannsóknaverkefnunum GeoWell og DEEPEGS sem studd voru af Horizon 2020 áætlun Evrópusambandsins.
Þau voru virkniprófuð við raunaðstæður í tilraun á yfirborði í samstarfi við Orkuveituna, ON, Landsvirkjun og HS Orku í GEOTHERMICA verkefninu GeConnect (2019-2022).

