Hoppa í aðalefni
ÍSOR, Iceland GeoSurveyÍSOR, Iceland GeoSurvey

Háhiti

Kolsýruhverir: laugar og ölkeldur

Kolsýruhverir

Kolsýruhverir: laugar og ölkeldur

Kolsýruhverir kunna að vera víðar en nú er vitað. Þeir eru fyrst og fremst þekktir á Ölkelduhálsi, sumir býsna stórir, þ.e. 10–20 m að þvermáli, með grágruggugum tjörnum og smávegis afrennsli. Gas- og suðuólga er í þeim á nokkrum stöðum en tjarnirnar annars misheitar. Engar útfellingar eru í kringum þær. Vatnið í hverum þessum er yfirborðsvatn úr hrauninu ofan við en mikil kolsýra er í gufunni sem hitar þá.

Finnast: Innstidalur, Ölkelduháls, Ljósártungur

Kalkhrúður

Kalkhrúður þekkist á fáeinum stöðum á háhitasvæðum þar sem nú er kalt eða óverulegur ylur í uppsprettum. Þessir staðir eru utan í Selvallafjalli (suðvestur af Trölladyngju) og í Blautukvíslarbotnum. Á stöku stað eru allmiklar útfellingar af aragóníti sem flokkað er með kalkhrúðri.

Kolsýruhverir og –laugar með kalkútfellingum

Kolsýruhverir og –laugar með kalkútfellingum koma fyrir á nokkrum háhitasvæðum, einkum við jaðra þeirra, eða þar sem virknin er dvínandi. Vatnið í þeim er grunnvatn fremur en yfirborðsvatn. Hverir og laugar af þessum toga eru í Reykjadal sunnan undir Ölkelduhálsi og austan undir Hengli (Hagavíkurlaugar). Í Kerlingarfjöllum (við Ásgarðsá), Tindfjallajökli (Hitagil), Kverkfjöllum (Hveragil) og sunnan undir Torfajökli eru kalklaugar á nokkrum stöðum sem jaðarfyrirbæri (t.d. við Markarfljót, Bratthálskvísl og Hitalaug/ Hólmsárbotnalaug).

Finnast meðal annars á Grímsnesi, Kerlingarfjöllum, Tindfjallajökli, Ljósártungum, Vonarskarði, Kverkfjöllum.

Ölkeldur

Ölkeldur eru kaldar eða rétt volgar uppsprettur sem finnast á háhitasvæðum og oft í jöðrum þeirra. Yfirleitt eru þær járnmengaðar og bragðvondar og vatnið rauðbrúnleitt, jafnvel svo liti heilu lækina (Rauðfossakvísl). Slíkar ölkeldur eru á Torfajökulssvæði, einkum norðvestan til, en líka sunnan megin (Ölstallur) og austur í Jökulgili (Hraukarnir). Þær þekkjast einnig á Hengilssvæðinu (Hengladalir), í Vonarskarði og sem afrennsli inn af Grænalóni. Vatn úr þeim köldustu, sem mest ólga af kolsýrunni, er drekkandi þótt brúnleitt sé.

Finnast við Trölladyngju, Innstidal, Ölkelduháls, Kerlingarfjöll, Tindfjallajökull, Landmannalaugar, Jökulgil, Vestur-Reykjadali, Austur- Reykjadali, Ljósártungur, Vonarskarð, Þórðarhyrnu.