Hoppa í aðalefni
ÍSOR, Iceland GeoSurveyÍSOR, Iceland GeoSurvey

Fréttir

ÍSOR hefur hafsbotnsrannsóknir vegna Eyjaganga. Sparker-endurkastmælir notaður í fyrsta sinn á Íslandi

ÍSOR · 30. júní 2026 · 1 mín. lestur

ÍSOR hefur hafsbotnsrannsóknir vegna Eyjaganga. Sparker-endurkastmælir notaður í fyrsta sinn á Íslandi

ÍSOR hefja í dag nýjan kafla í starfsemi sinni þegar sérfræðingar okkar halda til hafs um borð í sjómælingaskipinu Baldri ásamt erlendum sérfræðingum. Verkefnið er framhald rannsókna á hafsbotni sem ef vel gengur, geta varpað ljósi á gerð og gæði hafsbotns milli lands og Vestmannaeyja.

Rannsóknirnar eru unnar fyrir Eyjagöng ehf. og er skref í öflun gagna sem geta nýst við mat á mögulegri jarðgangatengingu milli lands og Vestmannaeyja. Takist rannsóknirnar vel munu þær veita mikilvægar upplýsingar um uppbyggingu og gæði hafsbotnsins og leggja grunn að frekari rannsóknum á svæðinu.

Við verkefnið verður í fyrsta sinn á Íslandi notaður sparker-endurkastmælir, sérhæfður rannsóknarbúnaður sem gerir kleift að kortleggja efstu jarðlögin undir hafsbotninum með mikilli nákvæmni.

Sparker-endurkastmælirinn var keyptur nýlega af átta innlendum stofnunum með stuðningi RANNÍS og er hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi.

Verkefnið í Vestmannaeyjum markar því jafnframt jómfrúarferð tækisins, sem vekur mikla eftirvæntingu meðal þeirra sem að rannsóknunum koma.

Mælingarnar fara fram um borð í sjómælingaskipinu Baldri, sem er í eigu Landhelgisgæslu Íslands, og munu standa yfir næstu tvær vikurnar. Á þeim tíma munu sérfræðingar ÍSOR, í samstarfi við erlenda sérfræðinga, afla gagna sem nýtast við áframhaldandi rannsóknir og mat á jarðfræðilegum aðstæðum á rannsóknarsvæðinu.

Í umfjöllun Eyjafrétta frá bryggjunni í Heimaey um jómfrúarferð tækisins má greina mikla eftirvæntingu í loftinu. Í fréttinni segir Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri Eyjaganga frá undirbúning verkefnisins og stemninguna fyrir mælingunum meðal Eyjamanna.

Nýr áfangi í rannsóknum Eyjaganga að hefjast.

Deila þessari grein
ÍSOR
Höfundur · ÍSOR

Skráðu þig á fréttabréfið og fáðu nýjustu greinar í pósthólfið.