Skip to main content
ÍSOR, Iceland GeoSurveyÍSOR, Iceland GeoSurvey

Seafloor research

Seabed research. Photo: Phillipe Jousett.
Seabed research. Photo: Phillipe Jousett.

Hjá ÍSOR starfar hópur jarðfræðinga, jarðeðlisfræðinga og eðlisfræðinga sem hefur á undanförnum áratugum byggt upp sérfræðiþekkingu í öflun og túlkun gagna af hafsbotni. Meðal verkefna má nefna ráðgjöf til stjórnvalda varðandi skilgreiningar landgrunnsins utan 200 sjómílna. ÍSOR hefur tekið þátt í rannsóknum á olíu og gasi fyrir Norðurlandi og verið ráðgjafi við undirbúning sérleyfa til rannsókna og vinnslu kolvetna.

Þjónusta ÍSOR í hafsbotnsrannsóknum – úrvinnsla og túlkun

  • Kortlagning
  • Setlagarannsóknir
  • Þyngdarmælingar
  • Segulmælingar
  • Endurkastsmælingar
  • Bylgjubrotsmælingar
  • Fjölgeislamælingar

Landgrunnsmál

ÍSOR veitir stjórnvöldum vísindalega ráðgjöf um afmörkun landgrunns Íslands. Um er að ræða rannsóknarvinnu, gagnaöflun og túlkun gagna. Auk þess hafa sérfræðingar ÍSOR tekið þátt í að kynna kröfur Íslendinga fyrir landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna. Fræðast má nánar hér um landgrunnskröfur Íslendinga.

Olíurannsóknir

ÍSOR veitir stjórnvöldum sérfræðiaðstoð við undirbúning á sérleyfum til rannsókna og vinnslu kolvetnis. Verkið er tvíþætt.

  • Að koma upp gagnasafni um landgrunn Íslands vegna leyfisveitinga. Gagnasafnið inniheldur m.a. endurkastsmæligögn úr setlagarannsóknum til olíuleitar, auk gagna úr ýmiss konar vísindaleiðöngrum. Þetta gagnasafn var nýtt til kynningar á svæðinu í svokallaðri Landgrunnsvefsjá sem var aðgengileg fram til ársins 2019.
  • Túlkun á mæligögnum með tilliti til líklegra auðlinda og leggja mat á hvar líkur eru á að finna olíu eða gas.

Kortlagning hafsbotnsins

ÍSOR er virkur þátttakandi í rannsóknarverkefnum styrktum af innlendum jafnt sem erlendum sjóðum eða orku- og olíufyrirtækjum. Hér má finna lista yfir samstarfsverkefni jarðfræðistofnana í Evrópu sem snúa að hafsbotnsrannsóknum:

  • Kortabók og stafrænn gagnagrunnur um jarðfræði Norðaustur-Atlantshafsins (NAGTEC, Northeast Atlantic Geoscience TECtonostratigraphic Atlas).
  • Kortlagning landgrunnssvæða (EMODnet, Europian Marin Observation Data Network).
  • Kortlagning jarðlaga og málmauðlinda á austurströnd Grænlands (NORDMIN, Crustal Structure and Mineral Deposit Systems: 3D-modeling of base metal mineralization in Jameson Land and nickel mineralization in Disko-Nuussuaq) (Greenland).

Brochures

ÍSOR seabed research (PDF)

Iceland Offshore Exploration (PDF)

Map of Iceland's seafloor and offshore geology
Offshore and seafloor mapping, part of ÍSOR's geological mapping.

More on this service

Get in touch