ÍSOR býr yfir áratuga reynslu í að meta orkuforða jarðhitasvæða bæði við lág- og háhitakerfi á Íslandi sem og erlendis. Mat á stærð jarðhitakerfis felst í könnunum og rannsóknum til að ákvarða eðliseiginleika og orkuvinnslugetu viðkomandi jarðhitakerfis. Matið byggist á fyrirliggjandi gögnum á hverjum tíma, eða á hvaða stigi nýting kerfisins er. Gögn sem stuðst er við geta verið frá yfirborðsrannsóknum og rannsóknar- og vinnsluborunum auk vinnslugagna.
Þjónusta ÍSOR
- Hugmyndalíkan
- Rúmmálsmat
- Reiknilíkangerð af jarðhitakerfi
- Mat á áhrifum niðurdælingar
- Mat á orkuvinnslu
- Mat á endingartíma jarðhitakerfa
Tengiliður: