Jarðefnafræði

Efnafræðilegar greiningar á sýnum af yfirborðsjarðhitavökva gera kleift að meta líklegan hita í viðkomandi jarðhitakerfi, og gefa hugmynd um suðuferla, streymisleiðir vökva og uppruna hans.

Rannsóknarstofa ÍSORÍSOR hefur yfir að ráða fullkominni rannsóknarstofu sem búin er tækjum til efnagreininga á:

  • jarðhitavatni
  • köldu vatni
  • gasi 
  • gufu
  • borsvarfi
  • útfellingum
  • bergi
Efnagreiningatæki 

Atómísogstæki greinir málma í vatnslausn (t.d Na, K, Mg, Ca, Fe, Mn og Al). Tengt við grafít-brennara nýtist tækið til að greina þungmálma meðal annars vegna mengunarrannsókna (As, Cd, Cr, Co, Pb, Ni, Ag, Zn).

Litrófsmælir

Jónaskilja er notuð til mælinga á anjónum í vatni (Cl, SO4, I, Br, F). Tækið er einnig notað til mælinga á sýnum úr ferlunarprófunum til rannsókna á jarðhita- og grunnvatnskerfum. Jónaskilja er rekin í samvinnu við Háskóla Íslands og Iðntæknistofnun.

Gasgreinir og röntgenflúrljómunartæki greinir magn gastegunda í sýnum frá jarðhitasvæðum en þær eru helstar N2, H2, NH3, Ar, CH4, CO2 og H2S. Einnig til greiningar á lífrænum gastegundum.

ICP-tæki greinir öll helstu steinefni í vatnslausn með mikilli nákvæmni. Rannsóknastofa ÍSOR á hluta í tækinu með Iðntæknistofnun og Rannsóknarstofnun landbúnaðarins.

XRD-tæki, "X-ray diffractometers". Til greininga á kristalgerð fastra efna, til dæmis útfellingum í lagnakerfum, steindum í bergi, leir í svarfi frá borholum og ýmsu öðru. 

Rafeindasmásjá, skoðar og greinir uppbyggingu og samsetningu útfellinga og annarra fastra efna. Tækið er á Iðntækistofnun.

Rannsóknarstofa ÍSOR á að auki ýmiss smærri efnagreiningatækja.


 

Tengiliðir:
Finnbogi Óskarsson
Efnafræðingur

+354 528 1543
+354 695 0397
finnbogi.oskarsson@isor.is
Sigurður Sveinn Jónsson
Jarðfræðingur

+354 528 1540
+354 863 1863
ssjo@isor.is