Flýtileiðir um vef:

Laus störf

 ÍSOR er eitt stærsta og öflugasta fyrirtæki heims í rannsóknum og jarðvísindaþjónustu við jarðhitaiðnaðinn og nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar sem slíkt.

ÍSOR og forverar þess hafa í 65 ár verið meðal leiðandi aðila í þróun þeirrar tækni sem gert hafa Ísland að einu fremsta ríki heims í nýtingu jarðhita og útvegað Íslendingum orku á mun lægra verði en hægt hefði verið með öðrum orkugjöfum.


ÍSOR stundar margvíslegar þverfaglegar rannsóknir og veitir þjónustu og ráðgjöf á sviði jarðhita og jarðvísinda og annast kennslu í jarðhitafræðum.

Starfsmenn eru nú um 85 af fimm þjóðernum.

Aðalstöðvar ÍSOR eru í Reykjavík en jafnframt er rekið útibú á Akureyri. Að auki rekur ÍSOR fyrirtæki í Chile ásamt tveimur íslenskum verkfræðistofum.

Engin laus störf eru á ÍSOR eins og er.


 

 


Fjöll og dalir