Mat á jarðhitaforða
ÍSOR býr yfir áratuga reynslu í að meta orkuforða jarðhitasvæða bæði við lág- og háhitakerfi á Íslandi sem og erlendis. Mat á stærð jarðhitakerfis felst í könnunum og rannsóknum til að ákvarða eðliseiginleika og orkuvinnslugetu viðkomandi jarðhitakerfis. Matið byggist á fyrirliggjandi gögnum á hverjum tíma, eða á hvaða stigi nýting kerfisins er, svo sem gögnum frá yfirborðsrannsóknum og rannsóknar- og vinnsluborunum auk vinnslugagna.
ÍSOR veitir víðtæka þjónustu við eftirfarandi stig eða þætti í mati á jarðhitaforða:
- Hugmyndalíkan
- Mat á rúmmáli/magni
- Líkangerð af jarðhitakerfi
- Mat á áhrifum niðurdælingar
- Mat á orkuvinnslunni
- Mat á bestu nýtingu svæðis
Þekkingarstjóri í forðafræði: Sæunn Halldórsdóttir, jarðeðlisfræðingur.

