Textastærð

-A +A

Kort

Jarðfræðikort af Suðvesturlandi.JARÐFRÆÐIKORT AF SUÐVESTURLANDI Í MÆLIKVARÐA 1:100 000
Kortið byggist á fjölmörgum jarðfræðikortum í mælikvörðum 1:20 000 - 1:50 000 sem unnin hafa verið fyrir ýmsa verkkaupa ÍSOR og forvera þess, Orkustofnun. Kortin hafa verið einfölduð, endurskoðuð og nýjum upplýsingum bætt við. Elstu jarðlögin á kortinu eru rúmlega 4 milljóna ára gömul og þau yngstu eru hraun frá Reykjaneseldum 1210-1240. Alls eru á kortinu um 160 mismunandi hraun. Á kortinu er bent á 40 áhugaverða staði og eru lýsingar að finna hér á vefnum.

Kortið er prentað í prentsmiðjunni Odda og söludreifing þess er í höndum Forlagsins.