Textastærð

-A +A

Jarðfræðikortlagning

ÍSOR sérhæfir sig í gerð ýmis konar jarðfræðikorta, því vandkvæðum er bundið að koma öllum upplýsingum fyrir á einu korti svo vel sé. Landupplýsingakerfið Arc/Info frá ESRI er notað við alla kortagerð hjá ÍSOR.

Helstu gerðir jarðfræðikorta:

Notagildi jarðfræðikorta:

  • Þau eru undirstaða umhverfismats, landnýtingar og skipulags í þéttbýli, strjálbýli og óbyggðum.
  • Þau eru nauðsynleg vegna nýtingar á auðlindum landsins svo sem orkulindum, neysluvatni og byggingarefnum.
  • Þau eru ein af forsendum skipulegrar og markvissrar náttúruverndar.
  • Þau eru til varnar gegn umhverfisslysum af ýmsum toga eins og mengun vatnsbóla og bruðli með byggingarefni.
  • Þau eru ómissandi þegar meta á hættu af völdum eldgosa, skriðufalla, flóða og jarðskjálfta.
  • Þau eru grundvöllur sérkorta í stærri mælikvörðum og yfirlitskorta af ýmsu tagi.
  • Þau eru fróðleiksnáma þeirra sem vilja fræðast um landið og náttúru þess.
  • Þau eru ódýr miðað við það gagn sem má hafa af þeim. Í mörgum tilfellum er unnt að draga stórlega úr kostnaðarsamari rannsóknum ef þau eru fyrir hendi.

Samstarfsaðilar: Náttúrufræðistofnun, Háskóli Íslands

Þekkingarstjóri í kortagerð: Skúli Víkingsson, jarðfræðingur.