Jarðeðlisfræði
Í jarðeðlisfræði er jarðskorpan rannsökuð með því að leggja út mælitæki á yfirborð jarðar og skyggnast ofan í hana með hjálp eðlisfræðinnar.
ÍSOR býður upp á eftirfarandi sérhæfðar mælingar:
-
Viðnámsmælingar; úrvinnsla og túlkun.
-
TEM-MT mælingar (transient electromagnetic), úrvinnslu og túlkun. Eru gerðar til að kortleggja jarðhita í efsta kílómetra jarðskorpunnar.
- MT mælingar (magneto-telluric) eru notaðar til að greina streymi jarðhitavökva upp í jarðhitageyminn.
-
- Jarðskjálftamælingar; úrvinnsla og túlkun.
- Jarðskjálftamælingar. Skráning jarðskjálftavirkni sýnir sprungukerfi djúpt í jörðu.
- Mælingar á þyngdarsviði. Þyngdarmælingar geta gefið til kynna tektónísk einkenni í viðkomandi jarðhitakerfi.
- GPS-mælingar á yfirborði.
Þekkingarstjóri í yfirborðsjarðeðlisfræði: Knútur Árnason, jarðeðlisfræðingur

